Faça login para habilitar sua assinatura e dê adeus aos anúncios

Fazer login
exibições de letras 3

Útgarður

Skálmöld

ró yfir röstum
ró yfir þröstum
ró yfir höllum
ró yfir gjöllum
ró yfir töngum
ró yfir dröngum
ró yfir hjöllum
ró yfir stöllum

vöknum seint og sjáum
sól á himni bláum
ef að líkum lætur
leggjum við upp í ferðalag
föngum ferðalanga
fyllum maga svanga
leggjumst sæl og síðan
sofum við fram á næsta dag

ró yfir jötnum
ró yfir vötnum
ró yfir fjöllum
ró yfir völlum
ró yfir stjörnum
ró yfir börnum
ró yfir tröllum
ró yfir öllum

förum seint að sofa
sátt í okkar kofa
þó að veður versni
vöknum alls ekki fyrir því
þar í hrúgu hrjóta
hávær börn til fóta
þau skal ekkert angra
æsir, menn eða skúraský

veggir útgarðs verja
vopnin okkar merja
bæði hjálm og höfuð
herfylkinga í vígahug
það er gott og gaman
grey að drepa saman
þegar birtu bregður
bjargast þeir sem að sýna dug

útgarða- brött er loka leið
liggur um vötn og sveitir
hefur þar kött og hugaskeið
hér sofa jötnar feitir

látum kylfur kremja
kinnbein sundur lemja
drekkum mjöð og mungát
meðan höfum við nokkurn þrótt
síðan brjótum beinin
berjum þeim við steininn
svo við dans og drykkju
dugum við fram á rauðanótt

vöknum seint og sjáum
sól á himni bláum
ef að líkum lætur
leggjum við upp í ferðalag
föngum ferðalanga
fyllum maga svanga
leggjumst sæl og síðan
sofum við fram á næsta dag

Adicionar à playlist Tamanho Cifra Imprimir Corrigir Enviar tradução

Comentários

Envie dúvidas, explicações e curiosidades sobre a letra

0 / 500

Faça parte  dessa comunidade 

Tire dúvidas sobre idiomas, interaja com outros fãs de Skálmöld e vá além da letra da música.

Conheça o Letras Academy

Enviar para a central de dúvidas?

Dúvidas enviadas podem receber respostas de professores e alunos da plataforma.

Fixe este conteúdo com a aula:

0 / 500

Posts relacionados Ver mais no Blog


Opções de seleção