Faça login para habilitar sua assinatura e dê adeus aos anúncios

Fazer login
exibições de letras 388

Niðavellir

Skálmöld

Niðavellir, náhvítur máninn skín
Dvergahellir, dulúð þér villir sýn
Sindradætur, synir og börnin öll

vetrarnætur, verma þau klettafjöll

Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa
Komið inn í hellinn því að hér, hér er gott að sofa

Galdrastafir, grafnir í stóran stein
dvergagrafir, dysjar og gömul bein
Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal
Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal

Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa
Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott að sofa

Trónir á mergi tinnugler
tindar úr bergi háir
Sindri og Hergill halla sér
hér sofa dvergar gráir

Heyr, mín kæra hefðarfrú
hér er gott að sofa
Á sig taka náðir nú
niðahjón og börnin þrjú

Þegar heyrist þrumugnýr
Þór við skulum lofa
Okkur geymir hellir hlýr
hér er gott að sofa

Náinn syngur næturljóð
núna sefur dvergaþjóð

Adicionar à playlist Tamanho Cifra Imprimir Corrigir Enviar tradução
Composição: Baldur Ragnarsson / Björgvin Sigurðsson / Gunnar Ben / Jón Geir Jóhannsson / Snæbjörn Ragnarsson / Þráinn Árni Baldvinsson. Essa informação está errada? Nos avise.

Comentários

Envie dúvidas, explicações e curiosidades sobre a letra

0 / 500

Faça parte  dessa comunidade 

Tire dúvidas sobre idiomas, interaja com outros fãs de Skálmöld e vá além da letra da música.

Conheça o Letras Academy

Enviar para a central de dúvidas?

Dúvidas enviadas podem receber respostas de professores e alunos da plataforma.

Fixe este conteúdo com a aula:

0 / 500

Posts relacionados Ver mais no Blog


Opções de seleção