Faça login para habilitar sua assinatura e dê adeus aos anúncios

Fazer login
exibições de letras 3

Með Jötnum

Skálmöld

æsist jötunn, eðlishvöt
oss frá glötun bjargar
rífur göt á feld og föt
flensar kjöt og sargar

skriðjöklar gnauða og skrafa í myrkrinu
skjálfti um höfðana fer
koma þau skríðandi úr kafi
kafloðin skrímslin úr hafi
bryðjandi grjótið og bergið og þúfurnar
brestur í öllu sem er
stætt er þá engum á ströndum
storknað er blóðið á höndum

ver oss vökull
vatnajökull
dansar dátt mey
dyrhólaey

vaknar í látunum vinur úr dvala
og veður í óvinaskaut
hann er með konu á herðum
hér vinnur bóginn á sverðum
stafnum í jörðina stingur hann hamrammur
stökkva þá dýrin á braut
brotnaði risinn úr bergi
berserkur hvikar nú hvergi

skelfur jörð
skelfur þar jörðin er skellur
skaftið á hraunlagðar hellur
stendur vörð
stendur hann vörð þegar steðjar að hætta
hann stendur með okkur og fellur

falla lauf
falla þá laufin að foldu
frjósa lík saman við moldu
birtan dauf
birtan er dauf þegar bardaga lýkur
þar bíða þau tvö sem að þoldu

brotnar sjór
brotnar þá sjórinn á bergi
bátarnir þoldu víst hvergi
hverfur mór
hverfur af mórinn en hvitslegin björgin
víst hvíla á eldgömlum mergi

kólnar blær
kólnar svo blærinn og kreppir
kverkunum risinn ei sleppir
losna klær
losnar um klær þegar lífið út fjarar
og loki þá óvininn hreppir

halda bönd
halda þau bönd er við hnýttum
heiðrum þær stundir er nýttum
jötnahönd
jötna- með hönd var þar járnstafur reistur
í jarðvegi lenti hann grýtt um

sofna börn
sofna loks börnin er sekkur
sólin við fjarlægar brekkur
bæjartjörn
bæjarins tjörn tekur blásvartan skugga
er bergrisinn úr henni drekkur

jötnahönd, járn- með vönd
jökull skelfur, freyðir strönd
jafnan halda engin bönd
jötnahönd, jötnahönd

jötnahönd, járn- með vönd
jörðin opnast, sökkva lönd
jakar íss við sjónarrönd
jötnahönd, jötnahönd

Adicionar à playlist Tamanho Cifra Imprimir Corrigir Enviar tradução

Comentários

Envie dúvidas, explicações e curiosidades sobre a letra

0 / 500

Faça parte  dessa comunidade 

Tire dúvidas sobre idiomas, interaja com outros fãs de Skálmöld e vá além da letra da música.

Conheça o Letras Academy

Enviar para a central de dúvidas?

Dúvidas enviadas podem receber respostas de professores e alunos da plataforma.

Fixe este conteúdo com a aula:

0 / 500

Posts relacionados Ver mais no Blog


Opções de seleção