Faça login para habilitar sua assinatura e dê adeus aos anúncios

Fazer login
exibições de letras 1

Ljósið

Skálmöld

ljósið dansaði, logar skinu
það létti okkur veturinn, hrakti burtu kala
ákaft brann i eldstæðinu
sá ylur veitti svöngum ró

skall á torfinu vestanvindur
sem vakti ótal óhreinar hugsanir af dvala
fingur alla frostið bindur
er fýkur lif úr östkustó

stakkur minn er storkinn köldu blóði
stendur hagl og illska mér í fang
þungfær liggur þröngur bæjarslóði
þreytist ég við dimman éljagang

ljósið andaðist, logar dóu
við lágum tvö í myrkrinu, heyrðum börnin gráta
tíðin var of góð á góu
nú geldur harpa fyrir það

draugagaddurinn bítur beinin
hvað bældi niður glóðina? það er snúin gáta
hlusta ég á vesæl veinin
og verð að koma mér af stað

niðadimm og náköld brennir móðan
nálgast hjáleiguna, allt er hljótt
fimbulnæturfrost mig setur hljódan
ferja þarf ég eldinn heim í nótt

í nótt fraus á tjörn
í nótt dóu börn
í nótt frusu litlar hendur í hel
sem höfðu áður leik að legg og skel
í nótt fraus á tjörn

brýst ég heim að bæjarskör
ber með hnefa hurð af hjör
birtan sýnir liðin lik
lokk af enni þeirra strýk

konan fölnuð, börnin blá
bædi liggja, hún þeim hjá
kaldan horfi köstinn í
kveiki ég upp eld á ný?

kveiki ég upp eld á ný?

littu út um ljórann, vinur
og leyfðu mér að kveðja þig
skálinn allur skekst og hrynur
þá skotta vildi gleðja sig

Adicionar à playlist Tamanho Cifra Imprimir Corrigir Enviar tradução

Comentários

Envie dúvidas, explicações e curiosidades sobre a letra

0 / 500

Faça parte  dessa comunidade 

Tire dúvidas sobre idiomas, interaja com outros fãs de Skálmöld e vá além da letra da música.

Conheça o Letras Academy

Enviar para a central de dúvidas?

Dúvidas enviadas podem receber respostas de professores e alunos da plataforma.

Fixe este conteúdo com a aula:

0 / 500

Posts relacionados Ver mais no Blog


Opções de seleção