Stormur þýtur stuggar við trjánum
stoltur og frekur sýnir þrek
sýnir þrek

Skellir hurðum feykir burt fánum
fremur í gáska ótal brek
ótal brek

Veistu að vindurinn sterki þinn huga hreinsar
hörmum og leiðindum þyrlar hann upp í loft
þyrlar hann upp í loft

Áfram brunar hamast og hamast
heima ég kúri, líður vel
líður vel

Við þessu tjóir ekkert að amast
indælt ég rokið bara tel
bara tel

Veistu að vindurinn sterki þinn huga hreinsar
heimaland mitt og þitt sannar það býsna oft
sannar það býsna oft

Veistu að vindurinn sterki þinn huga hreinsar
hörmum og leiðindum þyrlar hann upp í loft
þyrlar hann upp í loft

Composição: