Vindurinn mig vekur
og veltir sér af stað
En sólin nær mér situr
já hún situr öllu nær
Og geislar hennar glæðast
af gjöfum þess sem er

Visku sína vakti
og veitti farveg í
Í fljótið sem var forðum
Yfirfullt af öllu því
Sem ég átti einu sinni
vefur örmum faðmar mig

Í lífsins grænu lautu
rennur lækur undurtær
Og sólarinnar máttur
er meiri en í gær
Til himins nú sig hefur
og hærr´a á loft ég fer

Nú hann blæs og með vindi bærist
bjöguð en merkileg sýn
Því í stormi hrærist
hugsunin mín

Composição: